Andri og Þurý

Þetta reddast!!

06.10.2007 15:20:26 / thurei

6,okt

í kvöld er ég að sjá um pókerkvöld fyrir um 40 manns.. Það ætti að vera gaman. Annas er bara fínt að frétta.. Vorum að kaupa stóra húga pípu sem er alveg að fara að gera góða hluti. Þury á fullu að læra undir próf og ég í fullt af verkefnum..

Annars sé ég engan tilgang í þessari bloggsíðu þar sem við skrifum aldrei inná hana og ég er eiginlega ekkert að sjá frammá að það sé að breytast... Hinsvegar er ég kominn með myspace síðu og þið megið endilega adda mér sem vini.. www.myspace.com/andri_thor_k

 kv.

Andri 

 


» 1 hafa sagt sína skoðun

29.08.2007 21:09:29 / thurei

Halló

Jæja, þá ætti að vera kominn tími til að skrifa eitthvað..

Sumarfríið á Íslandi var frábært.. alltaf gaman að koma heim í góða veðrið og hitta fjölskildu og vini.. Nú erum við svo komin aftur til Árósa og það er líka bara mjög fínt.. Á leiðinni hingað tókum við 6 daga stopp í París sem var algjör snilld. París er alveg frábært borg,.. við skoðuðum allt það helsta, eins og: eiffel turninn, sigurbogan, sacre coeur, notre-dam, picasso safnið, luvre´, nýlista safnið og vínsafn... svo var bara borðaður mjög góður matur og drukkið endalaust af víni.. ekki slæmt.

 Nú fer hinsvegar skólinn að byrja, þury byrjuð og ég búinn að vera í fríi í vikunni og byrja í næstu viku.

andri


» 0 hafa sagt sína skoðun

13.06.2007 09:27:04 / thurei

Heim vi fljúgum

 farvel Billý.... ;)


» 1 hafa sagt sína skoðun

11.06.2007 09:03:16 / thurei

11.júni

nú fer að styttast í að við komum heim.. aðeins 2 dagar.. Hitinn enn að drepa okkur, það var t.d. 31,4 gráður í skugga klukkan 17 í gær. Það var einnig svipað í fótboltaleiknum á laugardaginn... sást greinilega að varnirnar verða slakari í svona hita þar sem skoruð voru 15 mörk í leiknum 10-5 fyrir okkur.. Svo ætlaði ég að kaupa viftu áðan en þær allar uppseldar, gladað dæmi.

Ég lenti í frekar leiðinlegu í gær.. ég fekk email um að ritgerðin sem ég skilaði í dag, átti ekki að vera 30 bls eins og ég hafði alltaf haldið.. og búinn að skrifa 30. heldur má hun ekki vera orði meira en 20 normal síður, þe. 9000 orð. Þannig ég þurfi bara að drífa mig í að eyða 1/3 af ritgerðinni.. var mjög pirraður... en það þíðir ekkert að væla yfir því.. skilaði þessu áðan .

já ég skilaði áðan... sem þýðir að ég er kominn í frí og get farið út í sólina eða verið inni í football manager.. held ég velji football manager, allavega þangað til hitinn minnkar aðeins.

svo er þury núna í afmælisfrokost með vinkonum, og svo skóli og partý um kvöldið, svaka fjör.

andri


» 1 hafa sagt sína skoðun

08.06.2007 09:16:50 / thurei

Merkilegur andskoti

allt er nú til. Hversu lengi ætli þetta verði löglegt? hverju ætti sosem að skipta hvort þetta se selt í vökvaformi eða ekki, væri þá löglegt að selja tóbak í vökvaformi (hljómar fáránlega illa)

en samt sem áður.. þetta er bara 3% áfengi.. allavega væri örugglega erfiðara að verða svona 'fyrsta fyllirísis fullur' á einhverju 3% vatn-duft afengi en því sem hingað til hefur verið drukkið.


» 0 hafa sagt sína skoðun

08.06.2007 09:01:46 / thurei

8.júní

Hér er búið að vera ótrúlega mikill hiti og sól.. og þar sem við höfum ekki enn haft vit á því að kaupa viftu þá eru oft á tíðum frekar ólíft í íbúðinni. En það er í lagi því við erum að fara að koma heim í kuldann eftir nokkra daga.

Á fótboltaæfingu í gær, klukkan 17 var 29 stiga hiti og sól og gjörsamlega vonlaust að hreifa sig.. liggur við að maður hlaupi hraðar í sundlaug en í svona hita.

Ritgerðirnar mínar eru allar að koma saman, ekki mikið eftir. Svo er ég að fara í þrítugsafmæli í kvöld og keppa í fótbolta í 30 stiga hita þunnur á laugardeginum.. Shit hvað það verður erfitt, svo förum við þury að passa á laugardaginn. 

Svo erum við þury komin með miða á Air, sem spila í laugardalshöll 16.júni minnir mig, og hlakkar mikið til.. Og svo hlakkar manni náttla líka mikið til að koma á klakann og hitta alla vitleisingana þar. Bið að heilsa í bili og sjáumst hress eftir 5 daga.

andri 


» 0 hafa sagt sína skoðun

24.05.2007 10:29:21 / thurei

Heimsóknir og ritgerðastress

Jónki og Rabbi og frú eru að koma í heimsókn á morgunn. Koma einhverntíman uppúr miðnætti. Það verður ábyggilega mjög gaman, bíst ekki við neinu öðru enda hefur bærinn iðurlega verið málaður rauður þegar ég, jónki og rabbi komum saman. Þau virðast reyndar ekki ætla að verða heppin með veður, það er búið að vera algjört sumarveður undanfarna daga, en spáð rigningu alla helgina. EN... þá er bara að drekka bjórinn inni ;)

Ég er búinn að vera á fullu í ritgerðasmíðum.. T.d. var ég farinn að sofa alla síðustu helgi fyrir klukkan 23 og kominn á´bókasafnið snemma.. Það gerist ekki oft skal ég segja ikkur.. Var alltof lengi af stað með þessar ritgerðir. En þar sem ég er gjörsamlega að gefast upp á þessu þa held ég að það sé bara mjög gott að fá heimsókn í nokkra daga og gleyma þessu ritgerðastússi í bili og koma því bara þeim mun ferskari til baka.
ég er allavega svo gott sem buinn með ba ritgerðina en það er eiginlega ekki orð komið á blað í hinni ritgerðinni sem heitir 'freedom of speech with regard to pornography'... hljómar spennandi en svo er því miður ekki.. allavega þær ritgerðir sem ég hef verið að lesa, sem kennarinn mældi með eru BARA leiðinlegar.. en þetta hlítur að reddast allt saman.

 Annars er bara fínt að frétta, þury ekki í neinum prófum núna sem er mjög gaman fyrir hana. Fótboltaliðið mitt SFHekla, sem inniheldur aðeins íslenska víkinga er að standa sig bara vel. Höfum unnið 4 leiki í röð, reyndar eftir lélega byrjun þar sem við töpuðum 3 leikjum, en við eigum allavega bara neðrihluta liðin eftir fyrir sumar..

Svo vann Liverpool ekki meistaradeildina, sem er bara gott mál!! Svo það er eiginlega bara ekki yfir neinu að kvarta, fuglarnir syngja, sólin kemur og fer, bilarnir keyra og við í stræto eða hjóli, sem er fínt... Veit ekki alveg hvað ég er að fara núna.. segjum þetta bara gott í bili.

Andri


» 0 hafa sagt sína skoðun

02.05.2007 19:53:35 / thurei

sumar og sól

hæhæ

 

Ég ákvað að skrifa smá á þessa síðu þar sem ég hef ekkert skrifað alveg óskaplega lengi. Hér er allt fínt að frétta, sólin skín og hitinn er kringum 20 stigin, eiginlega of heitt sérstaklega á kvöldin og nóttunni...dúnsængin ekki alveg málið!!

Það er ekkert próf hjá mér þessa önn ( í staðinn tvöfalt næstu önn) svo að ég nýt þess bara í botn að hafa tíma núna. Við Andri fórum í hjólatúr síðusti helgi og komumst að því að ströndin er í innan við 15 mín fjarlægð frá okkur, þar var alveg slatti af fólki í sólbaði og að spila stranblak. Við hliðina þessari strönd er svo Risskov skógurinn og þar sem við voum ekki í strandfötunum fórum við í labbitúr í skóginum og fórum í smá pikknikk með nesti og teppi...ekki slæmt að hafa svona stað stutt frá.

Á morgun er svo kapsejlads í háskólagarðinum ,sem er einhver róðrakeppni á milli deilda og að sjálfsögðu er læknadeildin með lið. Það á að vera gott veður svo að bekkurinn ætlar að sitja í garðinum frá hádegi og sötra bjór, svo á að grilla saman og fara á train um kvöldið, það er nú alltaf gaman :) Svo er bara að vona að læknadeildinn standi sig og við fáum hið gullna bekken í ár (það er ss verðlaunin).

við erum búin að kaupa flug heim þann 13.júní :) og hlökkum til að koma heim í útilegur, sumarbústaða ferðir og kaffihúsahittinga og fleira og fleira....ohh þetta verður gott sumarfrí :)

 

hilsen Þurílíus 


» 3 hafa sagt sína skoðun

26.04.2007 20:00:24 / thurei

26apríl

Ég veit eiginlega ekki af hverju við erum með þessa blessaða síðu þar sem maður nennir aldrei að skrifa neitt..

Það er allavega komið sumar aftur hér í Árósum, hvarf í smá tíma og komið aftur.. Það var 20 stiga hiti klukkan hálf 8 í kvöld sem er ekki svo slæmt.. Ég er bara að skrifa ritgerðir núna,, hefur gengið mjög hægt og bara vonandi að þetta fari að ganga hraðar svo maður nái nú að skila í tíma.

Svo er bara spurning hvort maður nenni að standa í því að kjósa.. Var eitthvað að reyna að ákveða mig áðan.. Skoðaði aðeins heimasíðurnar hjá sjálfstæðisflokknum og samfylkinnu.. samt soldið erfitt þar sem þú getur skoðað áform þeirra en það er eitthvað minna um ástæðurnir fyrir þeim..

Svo eru rauðu bolta liðin mín að standa sig vel þessa stundina. Chicago Bulls eru komnir aftur.. spurning hvort Jordan taki ekki fram skóna á ný.. þeir eru allavega 2-0 yfir á moti miami sem er nokkuð gott. Hver veit nema að maður fylgist ekki bara með úrslitakeppninni þetta árið. Svo eru United náttla að gera góða hluti með 'soninn' Fletcher í broddi fylkingar..

... hef bara nákvæmlega ekkert að segja..

Andri

 


» 0 hafa sagt sína skoðun

27.03.2007 14:52:18 / thurei

Heimsóknir

jæja nú er ýmislegt búið að gerast. Fyrst kom mamma í heimsókn. Við borðuðum góðan mat, skoðuðum gamla bæinn, út að borða, kaffihús, bjórsötr og listasafn og margt fleira skemmtilegt. Krissa kom á laugardagskvöldið og við borðuðm öll saman svakalega góðan mat. Íslenskt lambafille og með því.

Svo komu Siggi og hildur í heimsókn núna um helgina. Við gerðum líka ýmislegt með þeim. Þar má nefna: borða góðan mat, út að borða, spa, keilu, nokkur dansspor (ég og siggi ), slepptum reyndar sporunum og dansinum, meira svona smá drikkja. Svo fórum við siggi á fótboltaæfingu á föstudaginn og ég spilaði leik á sunnudaginn og siggi kom með. Það var gegggjað veður og svilað var á 'grasi', dálið illa farið. Já svo var líka spilað.

 Svo er Kristveig að koma næstu helgi, og Ásta (mamma þury) og Erna koma líka bráðum svo það er nóg að fjöri frammundan.

Ætla að hætta þessu í bili þar sem það er eitthvað hálf þunglyndislegt að skrifa blogg þegar það er bara mallorca veður úti...

andri


» 2 hafa sagt sína skoðun

14.03.2007 15:00:07 / thurei

14.mars

Ég var að fatta að ísland væri búið að ákveða lag fyrir Eurovision og því ákvað ég að kíkja á þetta.. Ég hefði betur sleppt því!! .. Hvernig komst þetta lag í keppnina? skil ekki.. Kanski er þetta geðveikt lag og ég hef bara svona lélegan smekk.. Allavega, burt séð því hversu lagið er kjánalegt, þá er myndbandi eiginlega enn verr, og textinn á ensku?? díssuss.. ógeðslegt! kemur eitthvað alltí einu ROCK'N ROLL ... blabla.. auk þess sem það er ekki hægt að skilja neitt..

 nóg um það... Veðrið er geðveikt! og mig langar út að leika....

 Ég var líka að taka til í dag.. skúra og svona.. Á meðan ég gerða það hlustaði ég á meistara Bowie og Scissor sisters og þegar lagið 'nont feel like dancing' kemur þá fæ ég alltaf ósjálfrátt þessa hvöt til að dilla mér.. ég er nú ekki mikið fyrir að dansa almenn en þetta kveikti eitthváð í mer og ég var byrjaður að dansa með riksuguna... hálf vandraðarlegt þegar ég leit útum gluggana og sá að það var slatti að fólki útá svölunum í kring sem sá mig dansa .. Fór í fötex að kaupa mat og bjór og vín.. og svo að sækja nýtt gas á grillið.. þetta tók slatta tíma..

bið bara að heilsa að sinni

andri


» 1 hafa sagt sína skoðun

11.03.2007 14:06:42 / thurei

11.mars

Loksins er komið internet í íbúðina okkar.. Þetta er búið að vera hálfgert klúður. Fyrist hringdi ég og pantaði netið sem átti að koma eftir 4 daga. Eftir viku hringdi ég aftur og þá átti það að koma eftir 2 vikur og þegar þær voru liðnar þá hringdi ég aftur og var sagt að það hefði verið eitthvað bull í tölvunni og að ég gæti bara sótt það í búðina sem er ekki langt frá okkur.. Sem sagt , hefðum getað farið þarna fyrir um mánuði síðan og fengið netið... Shit hvað þetta var leiðinleg saga.

 Allavega þá er helgin búin að vera fín. Ég spilaði fyrsta leikinn á tímabilinu á föstudaginn, það var æfingaleikur. Mjög gaman, þó ég hafi misstigið mig í lok fyrri hálfleiks og ekki getað spilað meira... Á  föstudagskvöldið horfðum við á heroes og elduðum svínalundir.. Geðveikt langt síðan við höfum séð einhverja almennilegan sjónvarpsþátt þar sem við höfum ekkert getað downloadað,, því það þarf víst internet til þess. Það er því nóg að gera að vinna upp alla þættina sem við erum búin að missa af ;) ..

Laugardaginn fór þury svo á íslensku stelpna læknisfræði partý.. f(áránlega illa orðað eitthvað) og ég fékk 2 stráka til mín og við horfðum á fótbolta, drukkum smá bjór og horfðum svo á standup með richard pryor.. mjög findið

Svo er mamma að koma í heimsókn á fimtudaginn.. Það verður gaman að fá hana í heimsókn. Hún ætlar líka að koma með lambakjöt sem er ekki verra.

ANdri


» 1 hafa sagt sína skoðun

27.02.2007 08:27:36 / thurei

27.febrúar

Það er allt að komast í fyrra form hér í Danmörku eftir ansi skrautlegt veðurfar. Ég átti að fara til london á föstudaginn klukkan 10 um morguninn en eftir að hafa biðið í 2-3 tima eftir rútu sem aldrei kom vegna of mikils snjó þá kom í ljós að fluginu var aflýst en sem betur fer gat ég tekið flug um kvöldið. Það gerði reyndar að að verkum að ég var ekki kominn á hótelið fyrr en um 2 um nóttina.

 Það var ótrúlega gaman í London, þar sem ég  hitti pabba og inga. Við komum allir úr sittihvorri áttinni. Pabbi frá þýskalandi, ég frá Dk, og ingi frá klakanum.
Við fórum að snilldarleik, fulham-manutd, þar sem við vorum á 2. bekk. Það var heldur ekki verra að Ronaldo skildi skora sigurmarkið 2 mín fyrir leikslok.

Annars erum við búin að koma okkur vel fyrir í nýju íbúðinni og líkar mjög vel.

Andri


» 4 hafa sagt sína skoðun

12.02.2007 10:56:21 / thurei

12.feb

Þá erum við búin að flytja,, eða allvega komin með dótið inní nýju íbúðina. Eigum eftir að bora og raða og svoleiðis.. og fá internettenginu sem er mjög mikilvægt !!

 Við fengum að vita á fimtudaginn að við gætum fengið lyklana á föstudaginn og við pöntuðum bara bíl á föstudaginn og drifum í þessu.. Ég tímdi ekki að leigja bílinn í meria en 4 1/2 tíma svo þetta var helviti strembið en gekk samt.  Náði að skila bílnum 1. mínútu áður en ég þurfit að skila honum..

 kv.

Andri


» 5 hafa sagt sína skoðun

04.02.2007 22:29:08 / thurei

4.feb

Á föstudaginn var okkur sagt að íbúðin sem við áttum á fá 1. mars (og við búin að segja íbúðinni okkar upp) væri kanski ekki tilbúin á rettum tíma.. Bömmer. EN.. okkur var í staðin boðin önnur íbúð í sama húsi, nákvæmlega eins íbúð, líka með nýjum innréttingum (eða svo gott sem) á mun lægra verði .. svo það er bara gott mál ;) .. ættum semsagt að flytja inn 15. febrúar ef hann stendur við sitt..

 

Á föstudaginn fór ég svo í póker með fótboltanum.. Það var þannig að maður borgaði 150 kr og fengum pizzu og að spila póker og svo voru verðlaun fyrir fyrstu 3 sætin.. Vorum 21 strákar og það var mikið fjör. Ég nældi mér meira að segja í verðlaun fyrir 2 sætið.. poker sett, mjög flott. Svo var ferðinni haldið í bæinn (XL) þar sem ég og flest allir strákarnir létum í okkur heyra í karokí við mikinn fögnuð viðstaddra ,, hehe.. Á sama tíma var þury í læknapartí sem var víst líka gaman þó svo þar hafi ekki verið neitt karókí :)

 

Laugardagurinnn var svo tekinn rólega.. En í dag var svo svaka leikur. Ég skellti mér á BillaBong og sá svo aldeilis ekki eftir því.

 

0

4

 

Ekki slæmt !!

 

kveðja.

Andri


» 2 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2 3 ... 9