Jæja, þá ætti að vera kominn tími til að skrifa eitthvað..
Sumarfríið á Íslandi var frábært.. alltaf gaman að koma heim í góða veðrið og hitta fjölskildu og vini.. Nú erum við svo komin aftur til Árósa og það er líka bara mjög fínt.. Á leiðinni hingað tókum við 6 daga stopp í París sem var algjör snilld. París er alveg frábært borg,.. við skoðuðum allt það helsta, eins og: eiffel turninn, sigurbogan, sacre coeur, notre-dam, picasso safnið, luvre´, nýlista safnið og vínsafn... svo var bara borðaður mjög góður matur og drukkið endalaust af víni.. ekki slæmt.
Nú fer hinsvegar skólinn að byrja, þury byrjuð og ég búinn að vera í fríi í vikunni og byrja í næstu viku.
andri